Síðdegisútvarpið

Kaup Landsbankans á TM,verklag er varðar þolendur heimilisofbeldis og orkuöryggi

Kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM af Kviku banka hefur vakið athygli en greint var frá því á sunnudag Landsbankinn og Kvika banki hefðu náð saman um kaup bankans á tryggingafélaginu TM fyrir 28,6 milljarða króna. Bankasýslan segist ekki hafa verið upplýst um kaupin. Ríkið á 98,2% prósent í bankanum. Á vettvangi stjórnmálanna er málið eldfimmt. En eiga fjárfestingar ríkisbanka byggja á persónulegum skoðunum stjórnmálamanna? Okkur í Síðdegisútvarpinu finnst málið vera ein allsherjar flækja. Til fara yfir þetta með okkur kemur til okkar dr. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur.

Í gær var haldin ráðstefna fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfisins og lögreglu um samvinnu í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis. Drífa Jónasdóttir sérfræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu hefur leitt verkefni innan ráðuneytisins á síðustu árum sem snýr samræmingu verklagsins og hennar sögn er afar mikilvægt samræma áhættumat fagfólks í slíkri þjónustu. Drífa ætlar koma til okkar á eftir og segja okkur betur frá þessu og fara yfir það hvar verkefnið sem hún leiðir innan ráðuneytisins er statt.

Vorfundur Landsnets fer fram í Hörpu á fimmtudagsmorgun undir yfirskriftinni ORKUÖRYGGI - HVERJU GETUM VIÐ ÁORKAÐ? Þar sem fjallað verður um mikilvægi flutningskerfisins og því velt upp hvort framtíðin orkuörugg, fyrirsjáanleg og ljós. Og líka hvort það orkuskortur fram undan á næstu árum. Mun Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, um­hverf­is-, orku- og um­hverf­is­ráðherra ávarpa fundnn. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnet, kemur til okkar.

Húshitunarkostnaður í Grýtubakkahreppi er þriðji hæsti á landinu og hefur sveitastjórn Grýtubakkahrepps farið fram á gjaldskrá Reykjaveitu þaðan sem íbúar sveitarfélagsins heitt vatn verði ekki meira en 30% hærri en aðalveita Norðurorku frá 1.janúar árið 2026 en gjaldskráin er um þessar mundir 60% hærri en sem notendur aðalveitunnar greiða. Við ætlum Þröst Friðfinnsson sveitarstjóra Grýtubakkahrepps til útskýra þetta mál fyrir okkur á eftir.

Í kvöldfréttum stöðvar 2 í vikunni var rætt við móður sem lenti í því sjö mánaða gamalt barn hennar flæktist í hári hennar og litlu munaði barnið myndi kafna. Snör viðbrögð konunnar urðu til þess betur fór en áhorfðist og með aðstoð nágranna hennar náðist bjarga barninu. Móðirin hafði tekið barn sitt upp í rúm til sín um miðja nótt og vekja slys eins og þetta eðlilega fólk til umhugsunar um hætturnar leynast víða. Við ætlum heyra í Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingi og sérfræðingi í slysavörnum barna á eftir og ræða við hana um öryggi ungbarna.

En við byrjum á þessu: Enn gýs við Sundhnjúksgíga og á línunni hjá okkur er Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur með meiru.

Lagalisti:

MÚGSEFJUN - Lauslát.

SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Undir Þínum Áhrifum.

Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim.

SSSól - Háspenna lífshætta.

eee gee - More than a Woman.

AXEL FLÓVENT - City dream.

BJÖRN JÖRUNDUR & RAGGA GRÖNDAL - Reiknaðu með mér.

Murad, Bashar - Wild West.

DIKTA - From Now On.

McKenna, Declan - Slipping Through My Fingers.

BEATLES - Eleanor Rigby.

Frumflutt

19. mars 2024

Aðgengilegt til

19. mars 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,