Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Málefni sveitarfélaga, Berlín og kjördæmavika

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ og nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var fyrsti gestur okkar. Á þingi sambandsins fyrir helgi voru efnahags- og kjaramál í brennidepli og því heitið að miða gjaldskrárhækkanir á nýju ári við verðbólgumarkmið. Við fórum yfir ástand og horfur með Almari.

Arthúr Björgvin Bollason í Berlín sagði okkur frá Berlínarmaraþoninu, stjórnmálum í Berlín og tónlist í spjalli dagsins.

Nú eru kjördæmadagar og þingmenn landsbyggðakjördæmanna flengjast um héruð til fundar við heimafólk hér og þar. Við heyrðum í Eydísi Ásbjörnsdóttur, þingmanni Samfylkingar í Norðausturkjördæmi, og Ingveldi Önnu Sigurðardóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Tónlist:

Herman's Hermits - No milk today.

Cathie O'Sullivan - The foggy dew.

Spilverk þjóðanna - Skýin.

Vörðukórinn - Skýin.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,