Morgunvaktin

Hjúskaparlög, hiti og hestamennska

Fjórar nýjar brýr, vegir og hringtorg eru komin í gagnið í Hornafirði. Við vígsluna söng Kvennakór Hornafjarðar og við spjölluðum um tónlist og samgöngur við Örnu Ósk Harðardóttur kórfélaga.

Við fjölluðum um lífeyrismál hjóna. Það er segja; hvernig fer með lífeyriseign og -réttindi fólks við skilnað. Lagðar eru til breytingar á gildandi lögum í drögum frumvarpi nýjum hjúskaparlögum. Við fórum yfir málið með Hrefnu Friðriksdóttur lagaprófessor.

Arthur Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall. Veður, stjórnmál og fótbolti komu við sögu. Afleiðingar hitabylgjunnar í Evrópu hafa verið miklar á menn og náttúru, Þjóðverjar eru svekktir eftir tap í 32-liða úrslitum HM og lögregla býr sig undir mótmæli á landsfundi AfD.

Það líður Landsmóti hestamanna - það fer fram á Hólum í Hjaltadal, keppni hefst á sunnudaginn. Við kynntum okkur keppnismálin; í hverju er keppt, til hvers horfa dómarar, hvað skilur góðan hest og frábæran, og góðan og frábæran knapa? Hulda Geirsdóttir hrossaræktandi, dómari og dagskrárgerðarmaður útskýrði þetta fyrir okkur.

Tónlist:

Álftagerðisbræður - Erla.

Four Others - Ray of light.

Klaufar - Ef allt gengur óskum.

Klaufar - Fólk.

Birt

30. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,