
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Hið íslenska biblíufélag hefur ráðist í nýja þýðingu á Biblíunni. Þýða á á "auðskilið mál" eins og það er orðað. Byrjað verður á Markúsarguðspjalli. Halldór Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, sagði frá verkefninu. Nýjasta útgáfa Biblíunnar kom út 2007 en þýðingin tók u.þ.b. 15 ár.
Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, sagði frá nýafstöðnum leiðtogafundi Evrópusambandsins og samskiptum ESB og Bretlands. Þá talaði hann um hitabylgjuna sem gengur yfir mið- og vestur Evrópu.
Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð á Skaga, var sæmd fálkaorðunni 17. júní, fyrir frumkvöðlastörf í baráttunni gegn riðu. Karólína sagði frá störfum sínum og sjálfri sér.
Tónlist:
Petti fyrir petti - Eivör Pálsdóttir,
Sunday morning coming down/Silver tongued devil - Kris Kristofferson,
Kindur jarma í kofunum - Gunnar Þórðarson, Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.