Morgunvaktin

Fyrirtækjarekstur, Berlínarspjall og friðlandið í Vatnsfirði

Rætt var um nýja skýrslu um efnahag lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Íslandsbanki og Reykjavik Economics unnu. Magnús Árni Skúlason hagfræðingur sagði rekstrartekjur og arðsemi hafa dregist saman og óvissa ríkti fyrir komandi misseri. Þá var rætt um öldrun stjórnenda fyrirtækja en flestir eru þeir 56 ára eða eldri en um aldamót voru flestir á aldrinum 36-45 ára.

Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason meðal annars frá lífinu í hitunum í Berlín og víðar í Þýskalandi. Hann ræddi líka um þá staðreynd helmingur leikmanna þýska landsliðsins á HM í fótbolta er af erlendu bergi brotinn og sagði frá skáldkonuninni Ingeborg Bachmann en öld er síðan hún fæddist.

Í síðasta hluta þáttarins var endurleikið viðtal frá september við Elvu Björgu Einarsdóttur Vatnsfirðing um friðlandið í Vatnsfirði.

Tónlist:

Sail on - Magnús og Jóhann,

Sumir dagar - Magnús og Jóhann,

Lady Madonna - Björn Thoroddsen,

Þín innsta þrá - B.G. og Ingibjörg.

Birt

23. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,