Morgunvaktin

Heimsglugginn, Blóðdropinn og Bíótekið

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fjallaði um norsk stjórnmál, þar sem Erna Solberg er hætta sem formaður Hægri flokksins. Umræðan um aukna samvinnu Norðurlandanna, meðal annars þegar kemur varnarmálum, kom líka við sögu, sem og stjórnmál í Danmörku.

Margrét S. Höskuldsdóttir rithöfundur hlaut í gærkvöldi Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fyrir bók sína Lokar augum blám. Hún starfaði lengi sem grunnskólakennari og gaf ekki út fyrstu bókina fyrr en hún var 49 ára.

Í síðasta hluta þáttarins var gramsað í safnkosti Kvikmyndasafns Íslands. Á sunnudaginn verða sýndar tvær gamlar myndir sem Gunnar Tómas Kristófersson sagði okkur frá.

Tónlist:

Árný Margrét - Waiting.

Björk Guðmundsdóttir - Vökuró.

Bragi Hlíðberg - Yfir stokka og steina : ræll.

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,