Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Heimsglugginn, rannsókn á vali og ákvarðanatöku og selatalning

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Getur verið að breska ríkjasambandið líði undir lok í nánustu framtíð? Fyrstu ráðherrar Skotlands Wales og Norður-Írlands sammæltust um yfirlýsingu um sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna á fundi í vikunni. Lýðræði, stjórnmál í Rússland, Svíþjóð og Serbíu voru líka rædd.

Hvernig veljum við og tökum ákvarðanir í daglegu lífi? Að þessu er spurt í nýrri alþjóðlegri rannsókn sem Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, fer fyrir hér á landi. Markmiðið með rannsókninni er að auka þekkingu á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku.

Svo töluðum við um seli. Landselum hefur snarfækkað við landið. Talning almennings um daginn benti enn til fækkunar en unnið er að formlegu stofnmati. Við ræddum við Söndru Granquist hjá Selasetrinu.

Tónlist:

South River Band - Fiðrildi á glugga.

Björn Thoroddsen - Fix you.

South River Band - Aldurhniginn.

South River Band - Aldingarðurinn.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,