Morgunvaktin

Staðan betri á Landspítala en björninn ekki unninn

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans var fyrsti gestur þáttarins. Tilefnið var í vikunni bárust jákvæðar fréttir af stöðunni á spítalanum. Miklu færri eru fastir á spítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum og öðrum úrræðum en verið hefur í langan tíma, með jákvæðum áhrifum á viðkomandi einstaklinga, aðra sjúklinga og starfsfólk. Þá verður opnuð bráðamatsdeild á næstunni.

Fjörutíu ár eru frá því skáldsagan Óbærilegur léttleiki tilverunnar eftir Milan Kundera kom út á íslensku. Friðrik Rafnsson þýðandi ræddi um bókina og Kundera.

Og svo var það sígilda tónlistin með Magnúsi Lyngdal. Hann fjallaði í dag um ungverska tónskáldið György Ligeti sem fór ótroðnar slóðir í sköpun sinni.

Tónlist:

Diddi og Reynir - Kata [Kötukvæði].

Hjálmar - Morgunóður.

Birt

4. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,