Morgunvaktin

Varnar- og öryggismál, Evrópumál og húsnæðismarkaður

Varnar- og öryggismál Íslands voru til umfjöllunar þegar Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, forstöðumaður Vörðu hugveitu, kom á Morgunvaktina. Tvíhliða varnaræfingin Norður-Víkingur, uppbygging varnarinnviða hér á landi og umræða um varnar- og öryggismál í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag voru rædd.

Björn Malmquist fréttamaður var á sínum stað. Hann ræddi við Kjetil B. Alstadheim, pólitískan ritstjóra á Aftenposten, um þjóðaratkvæðagreiðsluna. ýmsu leyti er umræðan um hana kunnugleg frá því sem var í Noregi, en talsverður munur er t.d. varðandi EES-samninginn. Björn ræddi líka við Hjört Smárason, sem var ferðamálastjóri á Grænlandi, og lýsti því sem Bandaríkjamenn aðhafast á Grænlandi. Það veldur mörgum heimamönnum áhyggjum.

Í síðasta hluta þáttarins var talað um húsnæðismarkaðinn. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, sagði áfram merki um kólnun, en hún væri nokkuð hægfara og ekkert hrun.

Tónlist:

Ragnheiður Gröndal - Ég þakka.

Los Bomboneros y sus bombasticos, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir - Hjarta mitt.

David Bowie - Life on Mars.

Birt

24. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,