Morgunvaktin

Verðbólga, hitabylgja og fótbolti

Verðbólga hér á landi mælist 5,2 prósent, og óðum styttist í ágúst, en ef verðbólgan þá verður yfir 4,7 prósent teljast forsendur kjarasamninga brostnar og heimild verður til þess segja þeim upp. Við ræddum um efnahagsmál og verðbólguna við Róbert Farestveit hagfræðing hjá ASÍ.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi um hitabylgjuna miklu á meginlandi Evrópu, enda stærsta fréttin í Evrópumálum síðustu daga. Hann ræddi líka um stjórnmál í Serbíu og á Ítalíu svo eitthvað nefnt.

32 liða úrslit eru hafin á Heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Fyrir mótið var mikið fjallað um peningahliðina - kostnað fyrir aðdáendur og aðsókn á mótið - og líka um þá ákvörðun fjölga liðunum í 48. Hvernig hefur þetta verið í raun, eftir mótið fór af stað? Björn Berg Gunnarsson fjármála- og fótboltasérfræðingur, fór yfir það.

Tónlist:

Nina Simone - I wish I knew how it would feel to be free.

Nina Simone - Love o' love.

Birt

29. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,