• 00:27:58Heimsglugginn - Bogi Ágústsson
  • 00:53:32Hveragerði og hermenn - Njörður Sigurðsson
  • 01:14:12ESB og lögin - Margrét Einarsdóttir

Morgunvaktin

Heimsgluggi, kanadískir hermenn í Hveragerði og Evrópusambandið

Erlend málefni voru til umfjöllunar þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Hann sagði frá umfjöllun erlendra fjölmiðla um almyrkvann, og um hjálmanotkun í Danmörku. Mestum tíma var þó varið í ræða um aukakosningar í Bretlandi í dag, þar sem Nigel Farage vinnur líklega, en athyglin hefur beinst Count Binface, eða Fötufési greifa.

Við fórum aftur til stríðsáranna og heyrðum sögu kanadískrar hersveitar sem hafði aðsetur í Hveragerði sumarið 1940 og annaðist varnir Suðurlands. Njörður Sigurðsson sagnfræðingur sagði frá, en síðar í dag verður minnismerki afhjúpað í Hveragerði.

Svo var fjallað um Evrópusambandið, í tilefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðar. Eins og við þekkjum hefur fólk ólíkar skoðanir á sambandinu og lítur það ólíkum augum. En hver er opinber skilgreining á hlutverki þess og tilgangi - við veltum því fyrir okkur og töluðum líka um valdaframsal og lagasetningu sambandsins. Margrét Einarsdóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík var gestur okkar.

Tónlist:

Hljómar - Þú og ég.

Björgvin Halldórsson, Ragnhildur Gísladóttir - blánar yfir berjamó.

Pálmi Gunnarsson - Þitt fyrsta bros.

Edith Piaf - Chanson bleue.

Björn Thoroddsen - Fridaynight@hringbraut.

Birt

13. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,