Morgunvaktin

Jón Bjarnason óttast að skólahald á Hólum leggist af

Háskólinn á Hólum verður sameinaður Háskóla Íslands, samkvæmt frumvarpi sem atkvæði verða greidd um á Alþingi í dag. Jóni Bjarnasyni, fyrrverandi stjórnmálamanni og skólastjóra Bændaskólans á Hólum, hugnast ráðstöfun illa og óttast skólahald á Hólum leggist af í framtíðinni.

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er ríkisstjórn Úkraínu til ráðgafar, ásamt öðrum, í aðildarferli sambandinu. Hann sagði frá verkefninu í samtali við Björn Malmquist, fréttamann í Brussel.

Bæjarstjórn Grindavíkur kemur saman til fyrsta fundar eftir sveitarstjórnarkosningar á morgun. Flokkarnir þrír sem buðu fram, náðu kjöri, ætla vinna saman í bæjarstjórninni - ekki verður myndaður meirihluti. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, ræddi um störfin fram undan.

Tónlist:

Sumarlag - Stjórnin,

Let's fall in love - Louis Armstrong,

Ríðum heim til Hóla - Jórunn Viðar og Þuríður Pálsdóttir,

Ríðum heim til Hóla - Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla,

Summertime - Louis Armstrong og Ella Fitzgerald,

Diamonds are a girl's best friend - Marilyn Monroe.

Birt

1. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,