Morgunvaktin

Sveitarstjórnarmál, storkar og álfar

Þrír dagar eru til kosninga og frambjóðendur sjálfsagt velta fyrir sér hvernig þeir geta heillað óákveðna. Reynslan sýnir dágóður hópur kjósenda bíður fram á síðustu stundu ákveða sig. Í lögum um sveitarfélög segir þau skuli vinna sameiginlegum velferðarmálum íbúa, eftir því sem fært þykir á hverjum tíma. Við fórum á mannamáli yfir helstu verkefnin með Evu Marín Hlynsdóttur prófessor í stjórnmálafræði.

Dönsk mál voru svo til umfjöllunar þegar Borgþór Arngrímsson kom í þáttinn. Við ræddum um stjórnmál, samgöngur og storka. Náið er fylgst með storkapari og ungum þeirra í hægvarpi, sem hægt er nálgast á storkene.dk.

Svo spjölluðum við um álfa og álfatrú. Fólkið á Litlu- og Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppi í Flóa hefur trúað á álfa í tvö hundruð ár og meira. Og hefur auðvitað fyrir því sínar ástæður. Lýður Pálsson sagnfræðingur sagði okkur sögur af álfum og mönnum.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-13

Ritchie Valens - Donna.

Dietrich Fischer Dieskau - Krákan.

Prins Póló, Moses Hightower - Maðkur í mysunni.

Birt

13. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,