Morgunvaktin

Nýr sveitarstjóri Borgarbyggðar, Berlínarspjall og HM

Unnur Brá Konráðsdóttir fyrrverandi alþingismaður og forseti Alþingis er nýráðinn sveitarstjóri í Borgarbyggð. Hún kom í kaffi til okkar, við ræddum um Borgarbyggð og nýja starfið og sitthvað fleira.

Arthúr Björgvin Bollason talaði frá Berlín og fór yfir þýsk málefni: meðal annars þá staðreynd Þýskaland náði ekki kjöri í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á dögunum - sem þykir talsverð hneisa fyrir Merz kanslara og ríkisstjórn hans.

Og svo var það fótboltinn, eða öllu heldur saga þjóðanna sem keppa á HM sem hefst á fimmtudaginn. Í dag fjallaði Illugi Jökulsson meðal annars um Írak og Íran og Egyptaland og aðeins um Frakkland og líka Erling Haaland.

Birt

9. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,