Morgunvaktin

Efnahagslegt mikilvægi Svartsengis, Berlínarspjall og internetið.

Þórður Snær Júlíusson spjallaði um efnahag og samfélag. Við ræddum um hlutabréfaverð sem hefur lækkað nokkuð og útsvar sveitarfélaga sem á hækka í Garðabæ, sem og um möguleg efnahagsleg áhrif þess ef fer gjósa í Svartsengi.

Mörg verjum við þónokkrum tíma á internetinu - jafnvel mjög miklum. Og ekki er það allt til gagns sem við sækjum þangað. Á fáeinum árum hafa orðið til örfá risastór fyrirtæki sem veita þjónustu á netinu - eða í tengslum við það - og er svo komið þau hafa í raun náð á því ægivaldi og þar með okkur. Þessi fyrirtæki, fimm talsins, eru stærri og valdameiri en nokkurt heimsveldi hefur verið, mati Margrétar Hugrúnar Gústafsdóttur sem um árabil var blaðamaður og hefur lengi velt fyrir sér samfélagsmiðlum og nemur mannfræði við háskólann.

Svo var Arthúr Björgvin Bollason á sínum stað eftir Morgunfréttir og sagði okkur frá því sem er efst á baugi í þýsku þjóðlífi.

Umsjón:

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Tónlist:

Armstrong, Louis, Oliver, Sy and his Orchestra, Fitzgerald, Ella - Dream a little dream of me.

R.E.M. - Leaving New York.

Green, Freddie, Young, Snooky, Foster, Frank, Coker, Henry, Grey, Al, Count Basie and his Orchestra, Payne, Sonny, Mitchell, Billy, Basie, Count, Culley, Wendell, Fowlkes, Charlie, Newman, Joe, Jones, Eddie, Jones, Thad, Powell, Benny, Wess, Frank, Royal, Marshall, Williams, Joe - Going to Chicago.

Kraftwerk - The model.

Frumflutt

7. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þættir

,