Morgunvaktin

Hið íslenska bókmenntafélag og Passíusálmar Hallgríms Péturssonar

Sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps var samþykkt í íbúakosningu sem lauk á laugardag. Rætt var við Evu Sigurbjörnsdóttur, oddvita Árneshrepps.

Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað fyrir 210 árum. Ármann Jakobsson forseti félagsins kom í morgunkaffi.

Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, fór yfir tíðindi úr ranni Evrópusambandsins og fjallaði m.a. um væntanlegan beinan kostnað Íslands komi til aðildar. Hann ræddi þau mál við Hallgrím Oddsson hagfræðing sem heldur úti vefnum Evrópustraumar.is

Passíuálmarnir hafa venju samkvæmt verið fluttir á Rás 1 síðustu vikur, Svanhildur Óskarsdóttir handritafræðingur les. Hún kom á Morgunvaktina og spjallaði um sálmana.

Tónlist:

Sailing to Philadelphia - Mark Knopfler og James Taylor,

Krummi svaf í klettagjá - Guitar Islancio,

Partita No. 6 e. Bach - Víkingur Heiðar Ólafsson.

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,