Morgunvaktin

Lestur, Alþingi og aðlögun að loftslagsbreytingum

Enn koma íslenskir krakkar illa út úr Pisa-mælingu og aldrei verr en nú. Hæfni krakkanna er mæld en vandinn er sjálfsagt víðtækari; heimilin, skólakerfið, stjórnvöld, samfélagið í heild allt er undir. Við spjölluðum um þetta við Bjarna Fritzson rithöfund og formann skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur.

Svo er það löggjafarþingið, það var sett í gær, forsætisráðherra flytur stefnuræðu ríkisstjórnarinnar í kvöld og umræður um fjárlög hefjast á morgun. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, kom til okkar.

Við ræddum áfram um loftslagsbreytingar, á mánudag töluðum við um öfgarnar í veðurfari og í dag ræddum við um það hvað þarf gera til undirbúa og aðlaga samfélagið þessum öfgum. Helgi Þór Ingason verkfræðiprófessor og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir sjálfbærnisérfræðingur sögðu frá.

Tónlist:

Ane Brun - Stormens øye.

Teitur Magnússon og Hildur Kristín Stefánsdóttir - Mónika.

Marína Ósk Þórólfsdóttir - Coffee song.

Birt

9. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,