Morgunvaktin

Breytt staða smáríkja, Íran og kvenhetja í landbúnaði

Í Heimsglugganum fjallaði Bogi Ágústsson um breytta stöðu smáríkja í heiminum, ástandið er þannig huga þarf betur öryggismálum en gert hefur verið um nokkurt skeið. Hann ræddi við Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing.

Hálft ár er frá því Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran, og þrátt fyrir ýmiss konar yfirlýsingar sérstaklega Bandaríkjaforseta þetta hálfa ár þá er ekkert útlit fyrir frið. Við fórum yfir stöðu mála í Íran með Kjartani Orra Þórssyni miðausturlandafræðingi og sérfræðingi í málefnum Írans.

Við slógum svo á þráðinn til Höllu Sifjar Svansdóttur Hölludóttur, Sólskinsbónda, í síðasta hluta þáttarins. Halla Sif var útnefnd ein af kvenhetjum í landbúnaði af Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku.

Tónlist:

Svavar Lárusson - Sestu hérna hjá mér.

Johnny Cash - Aloha oe.

Ari Bragi Kárason - Always and Forever.

Elvin Jones, Woody Shaw, Joe Henderson, Larry Young - Softly as in a morning sunrise.

Svavar Lárusson - Ég vild ég væri.

Birt

27. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,