Morgunvaktin

Réttindagæsla, lausn vandamála og vaxtahækkun

Réttindagæsla fatlaðs fólks var færð til Mannréttindastofnunar þegar hún var sett á laggirnar fyrir nokkru, en það virðast brotalamir á nýja fyrirkomulaginu og fatlað fólk og aðstandendur hafa lýst yfir óánægju. Við fórum yfir þau mál þegar Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar, kom til okkar.

Svo var hér námskeið - við bjóðum stundum upp á örnámskeið - þessu sinni í lausn vandamála. Já, hvernig er best greina og leysa flókin vandamál? Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, kynnti sér nýverið aðferðir sem gagnast og sagði okkur frá.

Svo fylgdumst við með vaxtaákvörðun peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Við fengum viðbrögð Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, sem er fjölmennasta stéttarfélag landsins. Hún sagði endanlega ljóst tilraunin sem gerð var við síðustu kjarasamninga hafi mistekist.

Tónlist:

Sænskir listamenn - Nu börjar det sluta regna.

Peter Gabriel - The book of love.

Tómas R. Einarsson, Ómar Guðjónsson - Bræðraborg.

Eurythmics - I saved the world today.

Birt

19. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,