Morgunvaktin

90 ár frá Pourquoi-pas og dagur íslenskrar náttúru

Í dag er dagur íslenskrar náttúru, við gerum því náttúrunni skil. Linda Björk Hallgrímsdóttir aðstoðarþjóðgarðsvörður ræddi við okkur um Skaftafell, þá paradís.

Níutíu ár eru síðan franska rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst við Álftanes á Mýrum og með því yfir 30 manns. Skipið var á leið til heimahafnar eftir stutt stopp í Reykjavík. Illugi Jökulsson kann þessa sögu.

Guðmundur Rúnar Svansson, formaður Ferðafélags Snæfellsness, var líka á línunni og sagði okkur frá nokkrum uppáhaldsstöðum á landinu.

Maður er nefndur Umar Kremlev og er Rússi af auðugra taginu. Hann var í fréttunum fyrr í vikunni þegar í ljós kom hann greiddi hluta brúðkaupsveislu sonar Bandaríkjaforseta, á Bahama-eyjum í vor. Þessi náungi er nátengdur æðstu ráðamönnum í Rússlandi og fortíð hans er æði vafasöm. Við heyrðum um hann í síðasta hluta þáttarins, Vera Illugadóttir sagði frá.

Tónlist:

Ómar Ragnarsson - Þar ríkir fegurðin.

Sinfóníuhljómsveit Íslands, Svala Nielsen - Pourquoi pas?.

Ed Sheeran - Thinking out loud.

Birt

16. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,