Morgunvaktin

Efnahagsmál, EES-samningurinn, Hornafjörður og Vestfirðir

Sveitarstjórnarfólk á Höfn í Hornafirði og Skaftárhreppi fundaði með ríkisstjórninni á Höfn í síðustu viku loknum vinnufundi hennar í bænum. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn, sagði frá því helsta sem rætt var en þar nefna aðstöðu- og skipulagsmál við Jökulsárlón, Skaftafell og fyrirhugaða gjaldtöku á nýju brúnni yfir Hornafjarðarfljót.

Vaxtaákvörðun verður kynnt á miðvikudag. Greinendur á fjármálamarkaði reikna flestir með hækkun stýrivaxta. Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ, fór yfir ástand og horfur í efnahagsmálum.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra var gestur Björns Malmquist fréttamanns í Evrópuglugganum. Einkum var rætt um EES samninginn og hið svokallaða ETS kerfi en undanþága eða sérlausn fyrir Ísland var framlengd á dögunum.

Skipulag vegna almyrkvans í síðustu viku gekk vel og hyggjast Vestfirðingar nýta þá athygli sem fjórðungurinn fékk í erlendum fjölmiðlum til sækja fram í ferðaþjónustu. Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, ræddi málið.

Tónlist:

Green green grass of home - Örvar Kristjánsson,

Peningar - Hljómar,

Sirkus Geira Smart - Spilverk þjóðanna,

All the pretty girls - Kaleo.

Birt

17. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,