Morgunvaktin

Loftslagsmál, kosningar í Þýskalandi og í Svíþjóð

Undanfarna mánuði hafa fréttir af hitabylgjum, gróðureldum, flóðum og ýmiss konar öfgum í veðri verið tíðar. Þrátt fyrir það hefur umfjöllun um hlýnun jarðar dregist saman víða. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, var fyrsti gestur þáttarins.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi um kosningar í Þýskalandi í gær og um heimsókn forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til Grænlands.

Þingkosningar verða í Svíþjóð á sunnudaginn. Lengi vel sýndu skoðanakannanir ríkisstjórnin væri kolfallin en undanfarið hefur dregið saman með blokkunum tveimur sem eru ráðandi í stjórnmálum. Síðustu dagar kosningabaráttunnar eru spennandi, og við ræddum um útlitið og stóru kosningamálin við Gunnhildi Lily Magnúsdóttur, dósent í stjórnmálafræði við háskólann í Malmö.

Tónlist;

Buddy Holly - That'll be the day.

Buddy Holly - Heartbeat.

Buddy Holly - Raining in my heart.

Buddy Holly - Early in the morning.

Elise Einarsdotter, Olle Steinholtz, Lena Willemark, Mikael Nilsson - Trasten.

Birt

7. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,