Morgunvaktin

Árásir Rússa, réttir og göngur og er hægt að koma sér í gott skap?

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fjallaði um erlend málefni. Við fjölluðum um Rússland, rússneskt skip sem hefur verið kyrrsett á Svalbarða og það Þjóðverjar segi Rússa bera ábyrgð á áformaðri árás á flugvöllin í Leipzig. Við komum líka við í bæði Danmörku og Svíþjóð og einnig í breska þinginu.

Réttað verður víða um helgina og von á gangnamönnum með safnið af heiðum í dag og á morgun. Við heyrðum í Helga Páli Gíslasyni, bónda á Höllustöðum og fjallskilastjóra sem varið hefur síðustu dögum á Auðkúluheiði.

Svo var talað um skap - gott og vont - og veltum fyrir okkur hvað ræður skapferli okkar. og getum við komið okkur í gott skap? Og hvað er til ráða ef lundin er þung. Helena Jónsdóttir sálfræðingur talaði um það.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,