Morgunvaktin

Stjórnarmyndun í Svíþjóð, hönnun og arkitektúr og ófögur saga af Íslandi

Ekkert gengur að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð eftir kosningarnar fyrir rúmum mánuði. Það hefur svo sem áður tekið tíma en virðist óvenju snúið núna. Gunnhildur Lily Magnúsdóttir stjórnmálafræðingur í Malmö fór yfir stöðuna.

Síðar í dag verða veittir styrkir úr Hönnunarsjóði, en hann á að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs. Formaður sjóðsins er arkitektinn Borghildur Sturludóttir, og hún ræddi um áhrif hönnunar og arkitektúrs í samfélaginu við okkur.

Svo fjölluðum við um Íslandsheimsókn Max nokkurs Nordau 1874. Hann kom til að vera við þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar og skrifaði heimkominn bók um ferðina. Ekki gaf hann landi og þjóð háa einkum, eins og við heyrðum þegar Guðmundur J. Guðmundsson sagnfræðingur kom til okkar, en hann tók sig til og þýddi bók Max.

Tónlist:

Laddi - Búkolla.

Björn Thoroddsen - The Hammer.

Sigfús Halldórsson - Litla flugan.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,