Morgunvaktin

Verkalýðsmál, Berlínarspjall og heita vatnið í Reykjavík

Finnbjörn A. Hermannson hættir sem forseti Alþýðusambandsins á þingi þess síðar í vikunni. Það hefur gustað um verkalýðshreyfinguna undanfarið og því jafnvel verið spáð að ASÍ klofni. En er það eitthvað nýtt? Hvernig er staðan í dag til dæmis samanborið við þegar Finnbjörn hóf afskipti af þessum málum fyrir 40 árum?

Afsögn ráðherra og stjórnarmyndun í Berlín var meðal þess sem Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur frá. Schröder, fyrrverandi kanslari, kemur líka við sögu; hann fór í afmæli til Pútíns vinar síns um daginn við lítla kátínu samlanda sinna.

Við fjölluðum líka um heita vatnið undir Reykjavík. Í vikunni hefjast boranir eftir heitu vatni; svo að segja í miðri borginni. Þráinn Friðriksson jarðfræðingur hjá Orkuveitunni spjallaði um það við okkur yfir kaffibolla.

Tónlist:

Bob Dylan - Girl from the north country.

Bob Dylan - Blowin' in the wind.

Comedian Harmonists - Wenn der Wind bläst über das Meer.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,