
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fjörutíu ár eru í dag síðan útsendingar Stöðvar 2 hófust. Af því tilefni var rætt við Jón Óttar Ragnarsson, stofnanda og sjónvarpsstjóra. Jón býr í Kaliforníu og hefur alið þar manninn mörg undan farin ár. Hann rifjaði upp aðdragandann að stofnun Stöðvar 2, skilningsleysið sem ríkti í viðskiptabanka fyrirtækisins á starfseminni, reksturinn og dagskrána og þær breytingar sem áttu sér stað í íslensku samfélagi um miðjan níunda áratug síðustu aldar.
Fjörutíu ár eru líka liðin frá fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í Höfða. Af því tilefni var fjallað stuttlega um húsið merka við Borgartún. Leikið var brot úr Flakki Lísu Pálsdóttur sem hitti að máli Önnu Karen Kristinsdóttur, móttökustjóra Reykjavíkurborgar, og Guðrúnu Halldórsdóttur í Námsflokkunum sem átti erindi í Höfða þegar Lísa var þar.
Í umfjöllun um sígilda tónlist var endurleikið samtal við Magnús Lyngdal frá í vor um tónverkið Myndir af sýningu.
Tónlist:
Jealous guy - John Lennon,
Watching the wheels - John Lennon.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.