Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Efnahagsmál, taugatækni og sjálfbærni

Staða efnahagsmála í heiminum var umfjöllunarefni Heimsgluggans. Bogi Ágústsson fór yfir ástand og horfur með Gylfa Magnússyni, prófessor við Háskóla Íslands. Það eru þrengingar víða, áður stöndug ríki og traustar framleiðslugreinar í talsverðum vanda.

Við forvitnuðumst svo um nýja deild og nám sem verið er að koma á laggirnar í Háskólanum í Reykjavík. Taugavísinda- og heilbrigðistæknideild verður þverfagleg. Dr. Kamilla Rún Jóhannsdóttir verður yfir deildinni og hún sagði okkur frá því sem þarna verður rannsakað.

Og meira tengt vísindum. Þolmörk jarðar eru vísindalegur rammi utan um þau kerfi sem við þurfum til að viðhalda stöðugum og lífvænlegum skilyrðum á jörðinni. Nýjustu rannsóknir benda til þess að mannkynið hafi farið út fyrir sjö af níu þessara þolmarka. En það er hægt að bregðast við. Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands ræddi þetta við okkur. Á morgun mun Johan Rockström, einn helsti vísindamaður á þessu sviði, halda opinn fyrirlestur í Háskólabíó.

Tónlist:

Joan Baez - Diamonds and rust.

Teitur Magnússon - Nenni.

Gammar - Route 77.

Paco de Lucía - Recuerdo a Patino (Alegrías).

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,