
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Efnahags- og kjaramál voru rædd við Aðalstein Árna Baldursson, formann Framsýnar á Húsavík. Hann vonar að ekki komi til uppsagnar kjarasamninga í næstu viku en segir að ríkisstjórnin verði að breyta um kúrs, hún hafi hingað til staðið fyrir gjaldskrárhækkunum langt umfram verðbólgumarkmið.
Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, fór yfir það helsta á vettvangi Evrópusamstarfs. Hann ræddi m.a. við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem var þar ytra á dögunum við hagsmunagæslu.
Samþykkt var hjá Sameinuðu þjóðunum fyrr í mánuðinum að taka upp nýtt heimskort sem sýnir m.a. rétta stærð Afríkuríkja en þau eru lítil á því korti sem einkum hefur verið notað í fimm aldir. Ekki er hægt að sýna heiminn með fullkominni nákvæmni á tvívíðu korti enda er Jörðin hnöttur. Rætt var við Sigmar Metúsalemsson, landfræðing og starfsmann Eflu.
Tónlist:
Tunglið, tunglið taktu mig - Gunnar Randversson,
Late Night Radio - Sunna Gunnlaugsdóttir tríó,
Alabama - Kenny Garrett,
Sigling - Magnús Þór Sigmundsson,
Sigling - Þorsteinn Magnússon.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.