Morgunvaktin

Mikilvægi hafna, Berlínarspjall og þjóðaratkvæðagreiðslan

Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, var fyrsti gestur þáttarins. Hafnir eru mikilvæg tenging landsins við umheiminn og skip eru stöðugt koma eða fara með fisk, farm eða fólk.

Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall. Hann sagði frá umræðu í Þýskalandi um þjóðaratkvæðagreiðsluna hér á landi, umfjöllun um Kerecis og um óvenjulega yfirlýsingu kirkjunnar í Sachsen-Anhalt, sem varar við yfirráðum AfD flokksins.

Við fræddumst um það sem brennur á fötluðu fólki í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar með þeim Atla Haraldssyni Zebits og Sunnu Dögg Ágústsdóttur frá Átaki, félagi fólks með þroskahömlun. Og svo fóru Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, og Haukur Brynjarsson, verkefnastjóri hjá Netvís, yfir góð ráð til vera á varðbergi gagnvart upplýsingaóreiðu.

Tónlist:

Animals - House of the rising sun.

Louis Armstrong - What a wonderful world.

America - A horse with no name.

Louis Armstrong og Ella Fitzgerald - Summertime.

Birt

25. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,