Morgunvaktin

Heimsgluggi, réttindagæsla og maraþonhlaup

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Fjallað var um Trump Bandaríkjaforseta og utanríkisstefnu hans. Hann hefur í vikunni haft í hótunum við Óman og öll ríki sem eigi einhvers konar viðskipti við Íran, dregið úr heræfingum með Suður-Kóreu og hrósað einræðisherra Norður-Kóreu, svo eitthvað nefnt. Þá fjallaði Bogi um kosningarnar framundan í Svíþjóð, þar sem allt útlit er fyrir stjórnin falli.

Margrét María Sigurðardóttir og Kristín Ella Guðmundsdóttir frá Mannréttindastofnun Íslands skýrðu hlið stofnunarinnar á breytingum á réttindagæslu fatlaðs fólks, sem voru gagnrýndar í þættinum í gær. Þær segja stofnunina ekki hafna yfir gagnrýni, en ekki hafi verið mikil breyting á þjónustu við flutning réttindagæslunnar.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt um maraþonhlaup og hlaup almennt. Sigurður P. Sigmundsson sigraði í fyrsta Reykjavíkurmaraþoninu hér á landi árið 1984, og spjallaði við okkur um fortíð og nútíð í hlaupum.

Tónlist:

Steindór Andersen - Lágnætti.

Steindór Andersen - Andrarímur.

Steindór Andersen - Það er vandi.

Arto Järvelä og fl. - En till Sven.

HLH flokkurinn, Sigríður Beinteinsdóttir - Vertu ekki plata mig.

Birt

20. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,