Morgunvaktin

Bandaríkin, landfræði og lágmynd Gerðar Helgadóttur

Í Heimsglugganum var fjallað um bandarísk stjórnmál. Stöðu og horfur þar í landi. Bogi Ágústsson var á sínum stað og með honum var Sigríður Rut Júlíusdóttir sem lengi hefur fylgst grannt með pólitíkinni vestan hafs.

Svo var fjallað um fræðigreinina landfræði sem í stuttu máli tengir saman umhverfi og samfélag. Um 400 landfræðingar sitja Norræna landfræðiþingið sem er haldið í Reykjavík. Við forvitnuðumst sérstaklega um borgarskipulag út frá femínískri landfræði og þá staðhæfingu sveitir heimsins séu fara í eyði. Til okkar komu Anna Karlsdóttir og Magnfríður Birnu Júlíusdóttir, en þær eru dósent og lektor í mannvistarlandfræði.

Nýtt deiliskipulag vegna Sæbrautarstokks hefur verið kynnt. Samkvæmt því er heimilt rífa húsið við Dugguvog 42 en á því húsi er stærðarinnar listaverk eftir Gerði Helgadóttur, einn merkasta listamann Íslands. Þessu mótmælir Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, harðlega. Hún ræddi málið við okkur.

Tónlist:

Kim Larsen - Om lidt.

Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Ríðum sem fjandinn.

Simon and Garfunkel - America.

Birt

25. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,