Hækkandi olíuverð hefur mikil áhrif hér á Íslandi eins og víða annars staðar. Og áhrifin eru víðtæk. Við erum háð olíu þó að markmið stjórnvalda sé að breyta því. Við spyrjum hvernig þau áform standa - já hvernig ganga orkuskipti? Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri hjá Umhverfis- og Orkustofnun var til svara.
Arthur Björgvin Bollason sagði okkur meðal annars frá ferðalagi sínu til Hamborgar, þar sem fór á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í síðustu viku. Þá ræddi hann um nýja vísindauppgötvun og um stjórnmálin í Þýskalandi.
Við spjölluðum líka um ferðaþjónustu; um ganginn hjá Ólöfu Ýri Atladóttur sem rekur Sóta; ferðaskrifstofu á Siglufirði og hótel í Fljótunum.
Tónlist:
Sigrún Jónsdóttir, Alfreð Clausen - Lukta-Gvendur.
Tríó Árna Ísleifs, Gerður Benediktsdóttir - Æ, ó, aumingja ég.
Svavar Lárusson - Ég vild ég væri.
Anna Gréta Sigurðardóttir - Carry me across the sky.
Jón Sigurðsson, Ragnar Bjarnason - Úti í Hamborg.
Creedence Clearwater Revival - Down on the corner.