Morgunvaktin

Skortur á námsgögnum hefur gríðarleg áhrif í skólakerfinu

Íslenskir kennarar eru ekki lakari en kennarar annars staðar. Þeir bara minna til vinna með, því í nærri tuttugu ár hefur fjármagn til þróunar og kaupa á námsefni rýrnað verulega í íslenska skólakerfinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu frá þróunarsjóði námsgagna. Áhrifin eru mælanleg - námsárangur er falla, munur milli sveitarfélaga og eftir félagslegum bakgrunni hefur meiri áhrif á það hvernig börnum gengur í skólanum. Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar þróunarsjóðs námsgagna, kom á Morgunvaktina.

Prestur Íslendinga í Danmörku, Sigfús Kristjánsson, lætur senn af embætti þar. Hann þjónar fyrir altari í síðasta skipti í Kaupmannahöfn á morgun. Sigfús ræddi um þessi tímamót og það sem tekur við við Guðrúnu Hálfdánardóttur í Kaupmannahöfn.

Magnús Lyngdal var svo á sínum stað í síðasta hluta þáttarins með umfjöllun um sígilda tónlist. Hann fjallaði um frægustu hljómsveitir veraldar - fílharmóníusveitirnar í Vín og Berlín.

Tónlist:

Kristjana Stefánsdóttir - Fagra veröld.

KK, Jón Jónsson - Sumarlandið.

Birt

22. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,