Morgunvaktin

Sigurður Ingi, lifandi hefðir og selló

Sigurður Ingi Jóhannsson var fyrsti gestur þáttarins. Hann lætur af formennsku í Framsóknarflokknum á sunnudag þegar nýr formaður verður kjörinn. Merkum kafla í lífi Sigurðar Inga er ljúka. Við fórum yfir árin tíu á formannsstóli; töluðum um Framsóknarflokkinn, stjórnmálin og Ísland.

Hefðir lifa vegna þess þeim er miðlað mann fram af manni. Þetta segir í yfirskrift á vefnum Lifandi hefðir, sem Þjóðminjasafnið heldur úti, og hægt er fræðast um en líka bæta við fróðleik um hefðir. Sumar hefðir eru árstíðabundnar og aðrar hversdagslegar. Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur á Þjóðminjasafninu spjallaði um hefðir.

Frægasti sellóleikari tuttugustu aldarinnar var svo viðfangsefni okkar þegar Magnús Lyngdal kom til okkar í síðasta hluta þáttarins. Mstislav Rostropovich var gagnrýninn á stjórnvöld í Sovétríkjunum, svo mjög hann var sviptur ríkisborgararétti ásamt konu sinni.

Tónlist:

Mandólínhljómsveit Reykjavíkur, Haraldur Guðmundsson - Rússneskt þjóðlag : tveir gítarar.

Tígulkvartettinn, Moravek, Jan - Tveir gítarar.

Bítlarnir - Do you want to know a secret.

Birt

13. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,