Morgunvaktin

Leyft öllum aldurshópum

Heimsglugginn, tjaldurinn Kasanóva og tungumál

Bogi Ágústsson fjallaði um nýjan samning um Grænland, sem Grænlendingar, Danir og Bandaríkjamenn gerðu fyrr í vikunni. Hann ræddi bæði við Ingu Dóru Guðmundsdóttur Markussen og Rasmus Gjeddsø Bertelsen.

Tómas Grétar Gunnarsson, vistfræðingur og forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, sagði okkur svo frá tjaldinum Kasanóva, sem hann hefur fylgst með lengi. Hann hefur vetursetu í Cornwall en kemur hingað til lands á hverju ári og fékk nafnið vegna tíðra makaskipta.

Evrópski tungumáladagurinn er á laugardaginn. Renata Emilsson Pesková er dósent við Háskóla Íslands og formaður samtaka tungumálakennara á Íslandi. Hún spjallaði við okkur um tungumál vítt og breitt.

Tónlist:

Lena Willemark - Vad viskar den vandrande vinden.

Uillut - Akimut Ikaarneq.

Jacques Brel - La chanson des vieux amants.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,