Morgunvaktin

Malbik, Berlínarspjall og Gloria Steinem

Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Malbikunarstöðvarinnar, var fyrsti gestur þáttarins. Hún veit allt um malbik, skrifaði meistararitgerð um það og hefur starfað í þessum geira lengi.

Arthúr Björgvin Bollason fór yfir kosninganiðurstöðurnar í Saxen-Anhalt um helgina, þar sem AfD hlaut yfirburðakosningu. Hann sagði líka frá umfangsmiklum tölvuglæp, þar sem miklu magni gagni var stolið úr tölvukerfi stjórnsýslunnar í Berlín.

Við ræddum um Gloriu Steinem, sem lést í síðustu viku, en hún var einhver þekktasti kvenréttindafrömuður Bandaríkjanna. Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði, talaði um hana og baráttumálin.

Tónlist:

Góss - Ó, blessuð vertu sumarsól.

Marta Kubisová - Hey Jude.

Sixties - Sól mín og sumar.

Aretha Franklin - Respect.

Otis Redding - Respect.

Birt

8. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,