Morgunvaktin

Mönnun í heilbrigðiskerfinu og ný björgunarskip

Helga Rósa Másdóttir, formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, var fyrsti gestur okkar. Umræðan um hjúkrunarheimili hefur verið mikil undanfarin misseri en mest talað um byggingar og rými - en það þarf líka að huga að fólkinu sem á að starfa þar. Mönnun í heilbrigðiskerfinu er víða langt undir viðmiðum, það á við á hjúkrunarheimilum og sjúkrahúsum.

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Landsbjargar, kom líka til okkar. Á undanförnum árum hefur björgunarskipafloti landsins verið endurnýjaður. Átta ný slík skip hafa verið tekin í gagnið og von á fleirum. Borghildur sagði frá þessu mikilvæga verkefni í starfi björgunarsveitanna og öryggismálum sjófarenda.

Fjallað var um Pétur Ottesen, sem er sá þingmaður sem lengst hefur setið á þingi. Tilefnið er að það eru 110 ár liðin frá því að hann tók fyrst sæti á Alþingi.

Tónlist:

Spilverk þjóðanna, Megas - Orfeus og Evridís.

Cecille McLorin Salvant - 9. Fog.

Haukur Morthens, Orion kvintettinn - Þér ég ann.

Tríó Jörn Grauengård, Haukur Morthens - Suður um höfin.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,