
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Handhafar Nóbelsverðlaunanna í hagfræði þetta árið byltu fyrri kenningum í þjóðhagfræði. Segja má - til einföldunar - að þeir hafi bætt mannlegri hegðun inn í spálíkön sem áður byggðu einkum á hefðbundnum hagtölum. Arnaldur Sölvi Kristjánsson, dósent í hagfræði, sagði okkur frá þeim Robert Hall og Michael Woodford og rannsóknum þeirra.
Það er mikil þörf á því í nútímasamfélagi, með falsfréttum, upplýsingaóreiðu og gervigreind, að miðla alvöru rannsóknum og vísindum til fólks. En hvernig er best að gera það? Á morgun munu vísindamiðlarar úr ólíkum áttum koma saman til að bera saman bækur sínar, og skipuleggjendurnir Davíð Fjölnir Ármannsson og Martin Swift, komu til okkar.
Senn lætur Antonio Guterres af embætti aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Síðara kjörtímabili hans lýkur um áramót. Sjö eru talin eiga raunhæfa möguleika á að taka við embættinu - Vera Illugadóttir sagði okkur frá þeim.
Tónlist:
Hanne Juul - Var det du?.
Shuteen Erdenebaatar - Saudade.
Mariza - Primavera.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.