
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fyrir næstum þrjátíu árum skrifaði Sigrún Davíðsdóttir blaðamaður bók á dönsku um handritamálið. Um baráttu Íslendinga og sumra Dana fyrir að handritin, eða hluti handrita í safni Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn, yrðu flutt til Íslands. Handritin heim. Nú hefur bókin verið aukin og bætt og íslenskuð. Við töluðum við Sigrúnu um pólitíkina í handritamálinu.
Bandaríkin annars vegar og Kína og Rússland hins vegar eru sögð vera að reyna að koma sér upp varanlegum bækistöðvum á tunglinu. Ætlunin er að bækistöðvarnar verði knúnar með kjarnorku. Ofurríkir einstaklingar hafa líka metnað fyrir framkvæmdum á tunglinu. Bjarni Már Magnússon lögmaður ræddi við okkur um það hver má gera hvað á tunglinu.
Stýrivextir verða óbreyttir, en háum stýrivöxtum er ætlað að vinna á verðbólgunni. Lítið hefur gengið nú í langan tíma. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, brást við vaxtaákvörðuninni og við ræddum um verðlagið og vextina og áhrifin á fólkið í landinu.
Tónlist:
Guðmundur Sigurðsson - Melódía í As-dúr.
Tord Gustavsen Trio - Piano interlude - Meditation.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Fingur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.