Morgunvaktin

Þjóðaratkvæðagreiðsla 1908, menningarnótt og sígild tónlist

Rétt rúm vika er í þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræður við Evrópusambandið. 29. ágúst nálgast óðfluga. Þetta verður tíunda þjóðaratkvæðagreiðslan sem efnt er til á Íslandi. fyrsta var haldin í september 1908 og snérist um áfengisbann. Við rifjuðum upp þessa fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu, aðdragandann og ástæður - Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur kom til okkar.

Menning og listir áttu hug okkar allan á níunda tímanum. Menningarnótt er á morgun og mikið um dýrðir í höfuðborginni, ekki síst í Hörpu þar sem 15 ára afmæli verður fagnað. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, og Ragnheiður Gröndal tónlistarkona komu til okkar.

Og Magnús Lyngdal var á sínum stað og spjallaði um sígilda tónlist. Í dag sagði hann okkur frá sovéska píanistanum Anatol Ugorski.

Birt

21. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,