
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi næstu árin og mikið atvinnuleysi, að mati hagfræðinga Alþýðusambands Íslands. Ný hagspá þeirra kom út í tengslum við þing ASÍ, sem lýkur í dag. Óvissa er gegnumgangandi stef í flestum hagspám þessi misserin. Þeir Róbert Farestveit og Ágúst Arnórsson, hagfræðingar hjá Alþýðusambandinu, sögðu frá.
Fyrir sextán árum síðan var sett fram hugmynd um norrænt sambandsríki, það gerði sagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg í bók sem vakti mikla athygli. Og þó að hugmyndin hafi ekki hlotið hljómgrunn meðal stjórnmálamanna þá hafa ráðamenn sett sér það markmið að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Hvernig stendur norræn samvinna og hvernig verða hagsmunir Norðurlanda best tryggðir? Hrannar Björn Arnarsson formaður Norræna félagsins á Íslandi ræddi það.
Og við rifjuðum upp umfjöllun Magnúsar Lyngdal um ítalsk-franska píanistann Aldo Ciccolini.
Tónlist:
Chuck Berry - No particular place to go.
Chris Potter - Dream of home.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.