
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í byrjun þáttar var rætt við Aldísi Hafsteinsdóttur sveitarstjóra í Hrunamannahreppi. Hreppurinn er sveitarfélag ársins, mæld er starfsánægja starfsfólks sveitarfélaga. Aldís sagði líka frá því að íbúar Hrunamannahrepps eru orðnir eitt þúsund, og reyndar gott betur en það.
Út er komin bókin Bréfið sem leiddi til byltingar. Í henni rekur Anna Agnarsdóttir sagnfræðingur aðdraganda þess að Jörundur hundadagakonungur ríkti hér í níu vikur sumarið 1809. Bréf, ritað tveimur árum áður, leiddi til þessa undarlega tíma í Íslandssögunni.
Í tilefni þess að Saminn Sigbjørn Skåden er handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár var endurleikinn hluti úr viðtali um Sama, sögu þeirra og menningu, frá 2020. Viðmælendur voru Sigurður Helgi Guðjónsson lögmaður og Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði.
Þættinum lauk á umfjöllun Magnúsar Lyngdal um sígilda tónlist.
Tónlist:
Honesty - Pálmi J. Sigurhjartarson,
Goodbye yellow brick road - Pálmi J. Sigurhjartarson,
Sem kóngur ríkti hann - Þrjú á palli,
Elle - Mari Boine.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.