Morgunvaktin

Laxness-æði, spilling og kvæði

Halldór Laxness hafði mikil áhrif á íslenska tungu. Um þau áhrif verður fjallað á þingi í Eddu á fæðingardegi hans á morgun. Tveir fyrirlesara, Steinþór Steingrímsson og Ágústa Þorbergsdóttir, komu til okkar og sögðu frá. Steinþór hefur skoðað þýðingar Laxness og Ágústa rakið áhrif hans á nafngiftir barna, fyrirtækja og jafnvel hljómsveita.

Þórhildur Ólafsdóttir ræddi við okkur um spillingu í löggæslu og dómskerfi í Úganda. Nýlegt og skelfilegt morðmál hefur orðið til þess um fátt annað er rætt í landinu.

Bára Grímsdóttir kvæðakona og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, kom svo í þáttinn og fór með nokkur kvæði.

Tónlist:

Clannad - Harry's game : theme.

Lúðrasveit verkalýðsins, 200.000 naglbítar - Láttu mig vera.

Mapumba - Mwafwako.

Steindór Andersen - Eiríkur formaður.

Dátar - Kling klang.

Birt

22. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,