Morgunvaktin

ADHD og sköpunargáfa, Berlínarspjall og heilagur Patrekur

Er fólk með ADHD með ríkari sköpunargáfu en annað fólk? því vildi Margrét Snorradóttir starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar komast. Hún sat ekki við orðin tóm heldur rannsakaði málið. Margrét kom til okkar og sagði frá niðurstöðunum.

Arthúr Björgvin Bollason fjallaði einkum um Jürgen Habermas sem talinn er til merkustu hugsuða Þjóðverja síðustu áratugi. Habermas lést um helgina, 96 ára.

Í dag er dagur heilags Patreks, þjóðhátíðardagur Íra. Líklega eru fáir þjóðhátíðardagar jafn fyrirferðarmiklir alþjóðlega og fagnað jafn víða. Dagurinn er tileinkaður dýrlingi sem var uppi á fimmtu öld og boðaði kristna trú á Írlandi, en fátt er vitað um með vissu. Skrúðgöngur og hátíðahöld Patreki og írsku þjóðerni til heiðurs hófust í raun í Norður-Ameríku, og bárust þaðan til Írlands og síðan um heim allan. Vera Illugadóttir sagði frá.

Tónlist:

Adda Örnólfs - Vorkvöld.

Dubliners - Dirty old town.

ADHD - ró.

Die anonyme Giddarischde - Palzied.

Barleycorn - The Blarney roses.

Furey Brothers and Davey Arthur - Ships in full sail.

Birt

17. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,