Morgunvaktin

Heimsglugginn, ráðlagður dagskammtur og sálumessa Mozarts

Bogi Ágústsson ræddi við dr. Sigurð Emil Pálsson, sérfræðing í netöryggi og fjölþáttaógnum, í Heimsglugganum í dag. Sigurður Emil starfar á vegum utanríkisráðuneytisins hjá Öndvegissetri NATO í Eistlandi. Þeir rættu öryggismál, netöryggi og Öndvegissetrið, ógnina af Rússum og ýmislegt fleira. Bogi minntist Henry Kissinger í upphafi, en hann er látinn 100 ára aldri. Kissinger var áhrifamaður í alþjóðamálum á seinni hluta síðustu aldar.

Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands, kom til okkar með ráðlagðan dagskammt af mjólkurvörum og plöntumjólk.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt um Mozart og sálumessu hans, sem og tónleika sem haldnir verða á dánarstundu hans, þann 5. desember eftir miðnætti. Það er Óperukórinn sem heldur þessa tónleika, og það er gert í minningu Garðars Cortes, en tónleikarnir eru hans hugarfóstur. Aron Axel Cortes mun stjórna einsöngvurum, kór og hljómsveit og Soffía Smith verður í kórnum en þau komu bæði á Morgunvaktina.

Tónlist:

Beneke, Tex, Miller, Glenn and his Orchestra - The lady's in love with you.

Karl orgeltríó, Rebekka Blöndal - Því ég sakna þín.

Óperukórinn - Sálumessa Mozarts

Trio Con Fuse, Garðar Cortes - Undir stórasteini.

Sund, Robert, Garðar Cortes - It might as well be spring.

Frumflutt

30. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þættir

,