Brynja Dögg Friðriksdóttir fréttamaður sagði frá atburðum næturinnar í Miðausturlöndum. Loftárásir á Íran héldu áfram, Ísraelar gerðu líka árásir á Líbanon og Íranir á nokkur ríki vinveitt Bandaríkjunum í heimshlutanum.
Nýlega var Jón Geir Pétursson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ, tekinn inn í Konunglegu sænsku skógræktar og landbúnaðarakademínuna. Jón Geir sagði frá henni og störfum sínum á sviði umhverfis og auðlindamála.
Björn Malmquist sagði fréttir af vettvangi Evrópusambandsins. Utanríkisráðherrar aðildarríkjanna funduðu um ástandið í Miðausturlöndum í gær og framkvæmdastjórnin kemur saman til sérstaks fundar í dag. Hann fjallaði líka um viðskiptasamning ESB og Mercusur-ríkjanna, heimsókn til Úkraínu í síðustu viku og fund Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands.
Góður árangur er af Jafnréttisskóla Gró sem starfræktur hefur verið í sautján ár. Hann hefur sótt fólk frá mörgum þróunarríkjum og haft með sér heim kunnáttu í að jafna stöðu kynjanna. Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður Jafnréttisskólans, og Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður Gró, sögðu frá.
Tónlist:
Við Reykjavíkurtjörn - Björgvin Halldórsson og Egill Ólafsson,
Laughter in the rain - Neil Sedaka,
One more mountain to climb - Neil Sedaka,
Is this the way to Amarillo - Tony Christie.