Morgunvaktin

Hafnarfjörður, mikilvægi ljóss í húsum og Mahler 8

Við heyrðum í upphafi þáttar í Guðrúnu Sigríði Tryggvadóttur, bónda í Svartárkoti, þar sem snjóar. Taka þurfti inn en Guðrún vonar sumarið láti sjá sig bráðum.

Í vikunni var myndaður meirihluti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. honum standa Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Viðreisn. Yfirskrift málefnasamnings er: Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði. Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðismanna og formaður bæjarráðs drekkur með okkur morgunkaffið á eftir og við spjölluðum vítt og breitt.

Ljósvist var í fyrsta sinn skilgreind í byggingarreglugerð í byrjun þessa árs, eftir mikla umræðu og gagnrýni á skuggavarp og þétta byggð í nýjum húsum. er skylda taka mið af dagsbirtu og útsýni þegar hús eru byggð. Við ræðum þessar breytingar og áhrif þeirra við þau Ólaf Árnason og Elínu Þórólfsdóttur frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

Og svo var það sígilda tónlistin. Eitt af stórvirkjum tónlistarsögunnar verður flutt í Eldborg í kvöld; sjálf áttunda sinfónía Gustav Mahler. Innvígðir tala jafnan um Mahler 8. Magnús Lyngdal sagði okkur frá verkinu og við heyrum auðvitað brot.

Birt

29. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,