Morgunvaktin

Íslenski fáninn, fiskur og franskar og sígild tónlist

Á Alþingi eru til meðferðar tvö mál er mæla fyrir um breytingar á lögum um þjóðfánann. Annað fjallar um rýmkun á fánatíma, hitt um ekki séu dregnir fánar annarra þjóða á stöng við opinberar byggingar nema við tiltekin tilefni. Við fjölluðum um fánann - ekki mikið um þessi þingmál en aðeins þó; aðallega heyrðum við um nýja könnun á viðhorfi fólks til þjóðfánans. Átta af hverjum tíu finna til stolts þegar þeir sjá íslenska fánann.

Fish & Chips - fiskur og franskar - er mikill uppáhaldsmatur margra, sérstaklega Breta, og hefur lengi verið. Og þótt íslenskir sjómenn hafi lengi séð Bretum fyrir hráefni í þennan vinsæla rétt hefur ekki skapast mikil hefð fyrir fiski og frönskum hér. En það kann breytast; við Mývatn er besti slíki veitingastaður í veröldinni, utan Bretlands. Við fjölluðum um fisk og franskar, Fish & Chips.

Í spjalli um sígilda tónlist fjallaði Magnús Lyngdal um hljómsveitarstjórann Herbert von Karajan. Við höfum síðustu misseri heyrt óteljandi brot úr verkum þar sem hann hefur haldið um tónsprotann en lítið fjallað um hann sjálfan og ævistarf hans og var bætt úr því.

Tónlist:

Elvis Presley - In the ghetto.

Elvis Presley - Love me tender.

Chuck Berry - Fish & chips.

Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Lady fish and chips.

Birt

27. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,