Morgunvaktin

Stofnun Bandaríkjanna, menning á Austurlandi og sálumessa Mozarts

250 ára afmæli Bandaríkjanna verður fagnað eftir rétt rúmar þrjár vikur, þann 4. júlí næstkomandi. Við fáum daglega fréttir af ýmsu sem gerist þar í landi og stjórnmál og menning þessa stórveldis hafa áhrif víða um heim. Við veltum fyrir okkur atburðunum sem urðu til þess Bandaríkin voru stofnuð. Fyrsti kaflinn í sögu Bandaríkjanna. Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur þekkir þá sögu vel og hann kom til okkar.

Menning og listir voru á dagskrá á níunda tímanum. Við spjölluðum fyrst um menningarlífið á Austurlandi; menningarstefna hefur verið sett fyrir fjórðunginn en við spurðum um mikilvægi menningarlífs fyrir fólk og samfélag í spjalli við Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra í Fjarðabyggð.

Svo var Magnús Lyngdal með okkur og þessu sinni tók hann sjálfa sálumessu Mozarts fyrir. Um verkið sjálft auðvitað hafa mörg orð en ekki síður ýmsar sögur - sannar og lognar sem spunnist hafa um það.

Tónlist:

Goodman, Benny and his Sextet - Song of the islands.

Grettir Björnsson - Austfjarðaþokan.

Birt

12. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,