Morgunvaktin

Hundrað ár frá fæðingu Margrétar Indriðadóttur

Jafnréttismál voru til umfjöllunar í kjölfar kvennaverkfallsins á þriðjudaginn. Gestir voru Dagbjört Hákonardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.

Í ferðaspjalli fjallaði Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, m.a. um afkomu Play á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega tveggja ára sögu félagsins sem hagnaður er af rekstrinum.

Á morgun, 28. október, eru hundrað ár frá fæðingu Margrétar Indriðadóttur. Margrét hóf störf á fréttastofu Útvarps 1949 og varð fréttastjóri 1968. Hún var fyrst kvenna á Norðurlöndum til gegna starfi fréttastjóra á ríkisfjölmiðli. Leiknir voru hlutar úr viðtali sem Eva María Jónsdóttir átti við Margréti í sjónvarpsþætti 1999 og brot úr erindi sem Margrét flutti á málþingi henni til heiðurs 2014.

Kristjana Arngrímsdóttir - Útþrá.

Karlakórinn Heimir - Logn og blíða.

Elín Eyþórsdóttir Söebech - Why won't you love me.

Tom Waits - Rosie.

Concha Buika - Las simples cosas.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson & Eyrún Magnúsdóttir.

Frumflutt

27. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þættir

,